Matarfíknimiðstöðin matarfikn.is
Lykilsteinninn

Kennari og leiðbeinandi á námskeiðinu verður Esther Helga Guðmundsdóttir MSc.
Námskeiðið hefst laugardaginn 07.02.2026 kl. 9-12.
Hópfundir verða síðan á miðvikudögum kl. 16.30-18.30.
Febrúar: Miðvikudagana 11, 18, 25.
Mars: Miðvikudagana 4, 11, 18, 25.
Apríl: Miðvikudagana 1, 8, 15, 22, 29.
Maí: Miðvikudagana 6 og 13.

Um námsskeiðið

Lykilsteinninn er umbreytandi 15 vikna prógramm fyrir hvern þann sem er að glíma við hinar ýmsu fíknir og áráttur. 
Prógrammið blandar saman  meðferðaprógrammi MFM miðstöðvarinnar sem byggir á viðurkenndum meðferðaraðferðum fyrir þá sem glíma við fíkn í ákveðin matvæli og áthegðanir og vottuðum bataferlum úr AA bók Alcoholics Anonymous.

Við skoðum hvernig uppeldi, áföll og ofbeldi hafa áhrif á bataferðalagið okkar.  Við lærum ferla sem leiða okkur í gegnum erfiðar tilfinningar eins og gremju, ótta og vanmátt til að takast á við vandamál og síðan hvernig við lærum að lifa með óleystum vandamálum.

Hvað er innifalið?

Prógrammið er einstakt og gefur þátttakendum tækifæri á að dýpka bataferlið sitt.

  •  Námskeiðið er fyrir þá sem hafa verið á námskeiðum MFM miðstöðvarinnar og vilja eignast meira frelsi.
  • Námskeiðið byggir á alhliða nálgun sem sameinar visku hefðbundinna meðferða með nútíma áherslum.
  • Þátttakendum er leiðbeint með grípandi fyrirlestrum, verkefnum, lestri, hlustun og hópumræðum, til dýpri sjálfsvitunar, tilfinningalegs jafnvægis, skýrrar lífsstefnu, frelsis og umbreytingar á lífstíl.
  • Þetta námskeið er sniðið að þeim sem sækjast eftir dýpra innsæi á gildum og leiðsögn sem er hornsteinn 12 spora bataferlis.

Það sem þú færð út úr námsskeiðinu:

  • Dýpri skilning á meginreglum og gildum AA bókarinnar og mikilvægi þeirra.
  • Endurnýjaða tilfinningu um tilgang og skuldbindingu um áframhaldandi bata.
  • Aukna sjálfsvitund, seiglu og persónulegan vöxt.
  • Hagnýtar æfingar til að beita kenningunum í raunverulegum aðstæðum.
  • Gagnvirkar hópumræður þar sem innsýn og reynslu er deilt.
  • Svör við spurningum og stuðning frá starfsfólki MFM.
  • Tækifæri til að leggja þitt af mörkum til að skapa og dýpka öflugt samfélag þeirra sem vinna að persónulegum bata.

Í lok námskeiðsins munu þátttakendur hafa öðlast djúpstæðan skilning á visku AA bókarinnar,  mikilvægi hennar í samtíma meðferðum og hvernig kenningar hennar geta leitt til varanlegrar umbreytingar. Hvort sem þú leitar að persónulegum vexti, dýpri tengingu við eigin bata eða vilt styrkja aðra í gegnum 12 sporin er „Lykilsteinninn” leiðarvísir þinn til skilnings á raunverulegum möguleikum til bata.

Kostnaður

Verð fyrir námsskeiðið er kr. 99.000

Boðið er uppá ýmsa greiðslumöguleika og veittur er 10% afsláttur fyrir þá sem staðgreiða og einnig fyrir skólafólk, öryrkja og heldri borgara.
Við bjóðum einnig að greiða með allt að 6 jöfnum greiðslum úr heimabanka.

Þeir sem vilja taka bæði námskeiðin þ.e. Hornsteininn og Lykilsteininn fá verulegan afslátt af báðum námskeiðum.

Verð fyrir bæði námskeiðin fá 25% afslátt:  Kr. 148.500.-  5% aukaafsláttur ef staðgreitt og fyrir skólafólk, öryrkja og heldri borgara.  Kr. 141.075.-

Hægt er að greiða með 6 jöfnum greiðslum úr heimabanka.